Laugardagur, 31. janúar 2009
Skáldin eru skyggn!
Er mađur hugsar um og rifjar upp ráđleysi og sóun undangenginna ára undrast mađur mest ţá blindu sem ríkti í ţjóđfélaginu og međvirkni. Einn daginn rifjađist upp fyrir mér ljóđ, ort fyrir svona 50 árum. Skáldiđ var einn sérstćđasti persónuleiki í skáldahópi ţess tíma og eru mörg ljóđa hans mjög athyglisverđ og öll frumleg, svo ekkert núlifandi skálda nálgast hann.
Klettabelti fjallkonunnar
ráđherra viđskiptanna telur
ađ vegurinn til velgengni sé
ađ fórna efnahag og sjálfstćđi
međ köldu blóđi eins og ţorskur
sá frumstćđi í forsćtinu segir
ađ trúin á landi sé lík
og trúin á stokka og steina
ţeir nota gjaldeyri ríkiskassans
til ađ drepa niđur framleiđsluna
ţeir eru ađ reisa viđ erlenda stjórn
yfir klettabelti fjallkonunnar
Vitanlega er skáldiđ ekki ađ tala um ţá sem nú eru eđa voru viđ stjórn, en líkingin er sláandi og auđlyndirnar eru sannarlega í hćttu nú og öllu frekar en á dögum skáldsins.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Er skáldiđ ekki Jónas Svafár?
Sigurđur Ţór Guđjónsson, 31.1.2009 kl. 16:24
Sćll Sigurđur. Kom engum á óvart ađ ţú kveiktir!
Jóhannes Eiríksson, 31.1.2009 kl. 19:31
Bćta viđ athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.